Auglýsing

Döfinni..!!

----
Mars

21. - Vorjafndægur..

----

Eigandi ;)

Ásdís Dynamite :)


Gestabók

Allir að muna að skrifa í gestabók og kommenta á þessari síðu ;)

Leit

Hætt hérna!!!!

26. apríl 2007 klukkan 15:37
Jæja ég hef ákveðið að skipta um síðu!!



www.123.is/asdisa



Þar mun ég alltaf setja inn myndir núna og svona!!!

Allir að kvitta í gestabók og svona!

Crazy in Love ;*

25. apríl 2007 klukkan 11:26


Ég er veik!!!



Ég hugsa ekki um annað en föt þessa dagana!!! Örugglega bara útaf því að ég á ekki pening til að kaupa þau! En ég einmitt er að fara á Sálarballið á laugardagkvöldið og ég veit ekkert hvað ég á að vera í!!!!



En núna var ég að skoða
www.bestseller.is og oooohhhh mér langar í Vero moda!!!


I love this one!!!!!

Langar í svona fyrir sumarið ;)


Langar í þennan!!! Hefur alltaf langað í silkikjól!!!


Langar í þennan líka...


Ooooohhh þessi er sætur!!!!! kostar eki nema 2990 í vero moda!!!


úlalalala!!!!!

Oh my god og svo var margt annað sem mér langar í!!!
Djöfull ætla ég að fara í smáralindina eða kringluna í næstu viku!!!
ÉG VERÐ!!!

Eeeennnn hver vill vera svo sætur að lána mér kjól eða eitthvað á laug híhí... Óákveðinn

Komin með ógeð af öllum fötunum mínum! Glottandi


Verið í bandi vúhú....!!

Hvað á að drekka á laug???

Bæbæ

Það er að koma sumar ;*

24. apríl 2007 klukkan 09:44
Svei mér þá!
Ég held barasta að það sé komið sumar hjá okkur íslendingum eða allavega svona vottur af því! hehe...

Ég get ekki beðið eftir sumrinu!
Ég fer í 5 vikna sumarfrí og svona!
Svo langar mér GEÐVEIKT til sólarlanda!!!!
Eins og Krítar eða Spánar eða eitthvað solles!!!


Seinasta helgi var ágæt! Vorum heima að chilla og það var gegt fínt!
En ekkert voða gaman þegar það var farið niðrí bæ.....!
Búin að setja þær 13 myndir sem ég tók!



En það verður víst svaka stuð næstu helgi!!!
SÁLARBALL!! Vúhú......
Ég ætla að vona að ég verði alveg búin að jafna mig, vegna þess að ég er að fara í seinustu jaxlatökuna mína núna eftir tuttugu mínútur!! shitturinn!!
Wish me luck!
Bæjó.....

Geggjað stuð!!

16. apríl 2007 klukkan 11:52

Jæja, þá er þessi helgi búin!! hehehe....
Það var gegt gaman ... ætla að skrifa smá
ferðasögu
og svona! En kannski fara alveg útí smáatriðin hehe...

Föstudagurinn:
  Hann byrjaði á því að ég vann til tólf of fór heim að gera mig til fyrir bústaðaferð ársins hehe.. Ég pakkaði niður og gerði allt áfengið tilbúið til brottförs hehe...
Vala sótti mig um þrjúleytið og við sóttum svo Söndru!
Ferðin byrjaði vel , þar sem við opnuðum skottið á bílnum til að setja dótið hennar Söndru inn og þá hrundi kæliboxið mitt út og það eyðilögðust 4 bjórar hehe! En það fyndnasta var að tapparnir skoppuðu bara af en þær brotnuðu ekki þótt þetta var bjór í gleri hehehe....
Svo keyrðum við í Rvk og skutluðum fyrst Jönu og fórum svo og sóttum Ellu ....
Þá fórum við af stað! Þegar Vala var búin að öskra á alla bíla í umferðinni hehehe!!
Fórum í bónus í Hveragerði ! Misstum okkar alveg vegna þess að við vorum allar svangar að versla í matinn hehe!
Svo var komið uppí bústað! Byrjað á því að kveikja á grillinu og komið sér svo fyrir! Vala sá aðalega um að grilla hamborgarana hehe.. Átum með bestu lyst! Svo var hlammað sér uppí sófa og horft á eina mynd! Sem var ten things I hate about you! Gegt kósý... Vegna þess að það var brjálað veður úti!! Við biðum eftir að stelpurnar kæmu, sem sagt, Rakel, Anika, Gréta og Elva ... Svo koma þær um tólfleytið! Við skelltum okkur í pottinn og svona! Svo voru allar mjög þreyttar eftir daginn nema Ásdís hehehe.... Ég vildi vaka lengur.. En þær fóru allar að sofa nema ég, Vala og Sandra! Þær píndu sig til að setja aðeins lengur með mér og hlusta á James Morrison... Svo þrjóskaðist ég inní rúm!


Laugardagurinn:
Vöknuðum allar klukkan ellefu þvílíkt ferskar! Fengum okkur morgunmat og slöppuðum af! Það voru einhverjar sem skruppu til Selfossar! en við hinar lágum í leti á meðan! Marr lagði sig og svo bara át marr og át!! Skellt sér í pottinn og sturtu...Ummm... Svo seinni partin var farið að huga að grillinu og solles! Um áttaleytið átum við (hehe sorry Vala borðuðum við) hehe... Svo var marr svo saddur eftir matinn að það var aðeins chillað! Svo var opnað bjórinn og allt! Farið í actionary og eitthvað! Begga kom um kvöldið beint í grillið híhí.... Farið í partýleikinn og gaman gaman! Farið aftur í pottinn og svo drukkið ennþá meira! Það var drukkið alltof mikið!!!! djammið til sjö :( fer ekki í meiri smáatriði! Segjum bara að þrír eða fl. ældu, ég drekk aldrei tópas aftur, og einhverjum var hrint :( hehehehehehe....


Sunnudagurinn:
Vaknaði með mestu þynnku í heimi! Gat varla staðið upp af dýnunni!! Það voru flestar svakalega þunnar! Drifum okkur að taka til og fórum svo heim! Komum við á kaffi Kidda Rót í hveragerði! Geðveikir hamborgarar!!! Svo heim!! jakk jakk....

Eg er búin að setja inn
myndir frá helginni... En það voru nú sumar sem ég sleppti, aðeins of grófar fyrir netið heheh! Þær eru hérna til hliðar!!! vúhú....
Ekki hika við að commenta við myndirnar!!


Varð að enda á þessari mynd! Rakel að kæla bjórinn sinn hehehehe... í pollinum fyrir utan grindverkið!!

Nenni ekki meir!!!
Bless...
Ásdís þunn og þreytt!!!


Mér hlakkar svo til...

12. apríl 2007 klukkan 15:31

Ég ákvað að aðeins að leika mér og setja inn svona smá "slúður" híhí...


John Mayer og Jessica Simpson
gegt happy ...


hún er svo fokking hott þessi gella....


Gwen Stefani
er alltaf flott ...


Hérna er mynd af henni
Britney okkar, þar sem hún er að koma útaf skemmtistað 29. mars síðastliðin.... Skilnaðurinn er víst komin í gegna hjá henni og Kevin Federline
..!


Christina Ricci
flott hérna ...


Oooohhh mér langar svo gegt að sjá nýju myndina með þeim ...


Hottie ;*


Er
Christina Aguilera byrjuð í Nylon
? humm? Check out the cake hehe...


Adam Brody
er ekkert svo sætur hérna humm..!! Hann á leiðinni á box-æfingu..


Tvíburarnir versla inn??? what, ég vissi það ekki?? og hvað þá á þessum hælum.. umm nice..


Ojj marr s´já hárið á henni!! For fuck sake!! Þetta er
Joss Stone
...!


Það er að koma víst fjórða sería af
Simple Life með þessum pjásum! Hva Hildur,
fengum við ekki að vera með :(


Heitasta parið fyrir utan
Angelicu og Brad.. Beyonce og Jay-Z
.. Djöfull er hún töff klædd marr...


What goes around, comes around ;* Djöfull ertu fokking heitur!!!


SEXY!!!
Laguna Beach stjarnan Kristin
! Vúhú...


Shakira
Sæta ;)


Boytoyið í Desperate Housewifes... úlala...


I don´t like this hair!!

Vúffff shitturinn komið sko nóg af þessu bulli! Nennir örugglega engin að skoða þetta... !!
Ohhh ég er svo flippuð!!

Það verður geggjað um helgina vúhú!
Þetta eru gellurnar sem ég verð með uppí bústað (eða það sem ég veit!)
 
Gréta og Begga

Anika Rós

Rebekka kannski á laug ;).. ég er vonandi búin að tala hana til...

Sandra Sæta...

Vala Beibí ;*

Ella Heita ;*

Rakel babe :)

Og svo kannski Sylvía ef hún nær að redda sér fríi!!!

Og audda ég líka jeeiii.. Get ekki beðið!!!!

Ásta ég er að vona! ;)

En skil þig vel að vilja ekki fara frá þessum litla engli ;*
Stal þessari mynd frá Ingu Lilju ;) Mér finnst hún geggjuð :)

Ef ég gleymdi einhverri á þessum lista þá veit ég ekki að þið eruð að koma hehehe!!

En annars gleðilega helgi híhí....
Bæjó!

10. apríl 2007 klukkan 15:17

oooohhhh fokking síða!! Ég er ekki að meika þetta! Ég borga hérna um 100 krónur á viku eða eitthvað! Til að setja inn fullt af myndum! svo bara fara þær ekkert inná!! Ég veit ekkert hvern ég get talað við eða neitt! Það er ekkert email eða neitt... Er einhver með email eða eitthvað??
Þess vegna ætla ég hér eftir að setja inn myndir inná
www.123.is/Bleikurtrefill en ég set slóðirnar á hverja myndir hérna til hliðar!! ----------> ég er t.d búin að setja núna inn myndir frá pásknum .. Svo ekki vera feimin við að gera komment á myndirnar og allt það! Þetta er miklu sniðugari síða heldur en þessi!!! Þannig að kíkiði á þetta hjá mér...!

En já páskarnir voru geggjaðir hjá mér þeir fóru bara í: éta ógeðslegan mat , liggja í leti, sofa og djamma!!!

Mér langar í alvörunni að æla núna!!

Það er komið heljarinnar átak núna!! Shitturinn líka!!

En skemmtilegasta djammið um helgina var á Miðvikudaginn, já ég endurtek MIÐVIKUDAGINN hehehe! Marr byrjaði páskafríið með stæl...!! Við byrjuðum aðeins heima hjá Rakel og svo fórum við heim til Erlu Lind og það var líka svona þrusu stuð!! Svo var skellt sér á Yello og dansaði eins og múkki!! hehehe .... Ýkt gaman og ýkt margir!!









Fimmtudagur: LETI!!! Fengið sér einn burger og solles og horft á þætti með Söndru og svo sofið!! hehehe... Ýkt stuð!

Föstudagur: Farið í mat hjá tengdó og svo fengið sér bjór og kíkt niðrí bæ með strákunum, það var ekkert geggjað! I needed my girls hehehe ;*






Laugardagur: Sofið híhí...

Sunnudagur páskar: Mat hjá tengdó.. Svo var "dregið" mig á djammið hehe... Við pjöllurnar hrundum í það heima hjá Elvu, það var gegt gaman!! Drukkið sig í hel og gert sig að fífli og svona hehe! Förum ekkert útí þá sálma hehehe!!!





Setning kvöldsins: ,,Þú ert svo fokking heit" hehehehe.....

Mánudagur: Vaknað og ég var svo þunn að það sást í gegnum mig, farið í neglur og sofa híhíhí....

hehehehe! Þannig að eftir þessa helgi verður farið í megrun og afvötnun hahahahahaha!!! Djókó!

Nema að að er svo djamm næstu helgi, uppí bústað ;* ;*;*

Allir að komment og skrifa í gestabók ;*

Bæbæ.. <í bili>

Gleðikona í háska!!!!!

04. apríl 2007 klukkan 09:53

Nei , djók Gleðilega páska...



Ég segi það núna vegna þess að ég ætla sko ekkert að blogga um páskana!
Þar sem ég verð í leti, sofandi eða étandi hehehe....

Það var gegt nice í gær, Vala kíkti á mig eftir vinnu og við fórum svo og fengum okkur að borða á Duus.. Eftir það fórum við heim aftur og ákváðum að horfa á Fegurðarsamkeppnina síðan að ég var í henni hehehe oh my god! Það er eitthvað svo kjánalegt að horfa á þetta! Eftir það hoppaði ég í sturtu og við fórum til Rakel sem var að koma heim eftir að hafa verið í Köben í mánuð! Vá, fallega gellan, hún var með ýkt mikið af nýjum fötum og skóm!! Allt aðalega keypt í H&M!!! Oj djöfull skal ég missa mig í H&M þegar ég fer út í haust! Ég elska þessa búð, hún er svo ódýr og GEÐVEIK föt!
       


En já páskarnir munu vera mjög róleg !! Ég ætla að djamma í kvöld og svo chilla restina af páskunum!!!

Hver vill djamma í kvöld?????

Ljóska aftur ;*

02. apríl 2007 klukkan 15:09



Jæja þá er ég orðin ljóska aftur híhí og fýla ég það sko miklu betur !

En svona fór helgin:

Ég skellti mér á Fegurðarsamkeppni Suðurnesja 2007 í Stapanum!


Ég vil byrja á því að óska Anyu og öllum stelpunum til hamingju með frábært kvöld og þið voruð allar stórglæsilegar!



Geðveikur kjóllinn hennar ;* Mamma hennar saumaði hann!!

Það var svaka fjör fyrir utan óperuna hehe... Ekki satt Ella og þið öll hin sem voruð þarna??

Þið sjáið hvað óperan var skemmtileg á svipnum á Ellu!
Ella: Það er svo slæmt að vera hommi??
Ég ætla bara að setja útí horni gegt fullur!
Eða eitthvað í þá áttina hehehe! Man það ekki alveg!
En það var gegt fyndið!!

En svona fóru úrslitin:

1. sætið var hún Karen Lind sem einnig vann netkosninguna!


2. sætið var hún Irmý og einnig vann hún Bláa Lóns stúlkuna og Ljósmyndafyrirsætuna!


3. sætið var hún Kristín og var hún einnig valin Speedo stúlkan enda þrusu kroppur þar á ferð


Og svo var hún Tinna valin vinsælust ...


Ella hérna að taka myndir og ég þarna fyrir aftan..
Sjáiði mig eða????

Gréta stóð sig með prýði við krýninguna nema þegar hún snéri borðunum tvisvar vitlaust hehe
Ég dýrka þig Gréta mín ..;*


Það var gegt gaman á keppninni og fórum við svo á Trix með Grétu babe eftir á ;*
Það var svaka stuð á Trix eftir á , marr fékk sér nokkra bjóra en fór bara snemma heim!

Krúttleg mynd af Ingu ;* ;*

Ég og Ella á chillinu á Trix eftir keppnina!

Hehehe og ein svona klikkuð! Ég dýrka þig marr ;*

Laugardagurinn var gegt skemmtilegur! Ég vaknaði klukkan svona níu og fór svo í einkaþjálfun! Svo fóru ég og Sandra heim í sturtu og skelltum okkur svo í RVK.. Kíktum aðeins í kópavog en keyrðum svo af stað austur og heimsóttum mömmu, pabba, Andra og Míló! Sáum bústaðinn sem pabbi er að byggja og fórum svo á fjórhjólið, það var svaka stuð! Svo skutluðumst svo með mömmu í bústaðinn sem við stelpurnar fáum helgina eftir páska vúhú!!! Ég taldi sængur og solles...! Um hvað allar þyrftu að koma með! Það voru tíu sængur en ég veit ekkert hvað það eru margir koddar!
Það sem þið þurfið að koma með, er:
Sængurver
Koddann ykkar
og eins mikið af handklæðum og þið þurfið!!
Svo má audda ekki gleyma ógeðslega mikið af áfengi og nammi!
Náttbuxur
og bikiní híhí...

Ég og Ella erum búnar að taka hjónaherbergið frá híhí! ;) sorry..


Andri eitthvað að aðstoða mig hehe!!


Oooohhh það verður svo gaman! Ég og Sandra fengum svona fýlinginn hvernig verður!! hehe...

Myndir inná!
<< www.123.is/Bleikurtrefill >>
Koma seinna hérna inn! Það er alltaf svo vangefið!



BÆJÓ

Allt crazy ;)

30. mars 2007 klukkan 13:54

Hæ elskurnar mínar!


Ég er þreytt-þreyttari-þreyttust!!!

Tískusýningin gekk mjög vel á Miðvikudaginn og var það gegt gaman! Svo fékk ég 8000 kr. inneign í búðinni fyrir , svo það var geggjað.. Ég keypti mér skokk/kjól, fjólubláa rúllukragapeysu og geggjað belti.. vúhú!
<<Búin að setja inn nokkrar myndir frá því>>

Geggjuð dragt, geggjað gaman...

Planið í dag er:
Vinna
Litun
Lífstíll
Ljós
Borða
Fegurðarsamkeppni Suðurnesja 2007
Eftirpartý á Trix..

Go Anya ... Myndin af henni í TVF er geggjuð! hún minnir mig á einhverja leikkonu!

Og myndin af henni var flottust ...
Gangi ykkur vel gellur ;* ;*
Djöfull verð ég óð á myndavélinni!!


Þetta verður svakastuð og er ég ekkert smá spennt að sjá stelpurnar í kvöld í kjólunum og sínu fínasta!
Ég ætla ekki að djamma um helgina!
Við stelpurnar , ég , Vala, Sandra, Elva og Sóley kíktum smá útí gær .. Byrjuðum á að setjast aðeins inná Duus (ég sá engar breytingar) hehe en þar var fengið sér smá sötr og spjallað um lífið og veginn hehehe...
Svo kíktum við yfir á Yello, þar sem var troðið af fólki, vegna þess að það var búið að vera einhver veisla uppá flugvelli fyrir starfsfólkið! Þannig að það var mikið stuð á fólki hehe! Audda var hann Helgi Valur að spila enda er hann bestur! Ekki satt Vala?? hehe... Við sátum þarna í smá stund hlógum og grínuðumst en fórum svo heim um tvöleytið!
Gellur, þetta var mjög gaman! Elska svona kvöld...!

Plan helgarinnar er svo soldið strembið! hehe elska þetta orð!!

En á morgunn, ætla ég og Sandra að vera gegt góðar á því og förum í einkþjálfun klukkan tíu um morguninn vúhú! Gegt duglegar!! Svo strax eftir það , þrífum af okkur skítinn og leggjum af stað í roadtrip híhí!! Munum fara austur og skoða bústaði og prufa fjórhjól vúhú! Svo verða örugglega pönnsur hjá mömmu híhí.. það er eins gott líka!

Við munum keyra um og skoða íslenska náttúru og sjá hvað búum á fallegu landi (fyrir utan auðvitað veðrið hjá okkur) hehe... Kíkt í einhverjar búðir og heilsað uppá snjómanninn ógurlega! Það verður svaka stuð Glottandi

Kvöldið mun svo bara fara í chill!! Þetta verð ég að eiga þá!!

Rósavín
Snakk/ostapop híhí..
og einhverja chick flick vúhú!!


Sunnudagurinn fer í að hjálpa til í fermingu hjá bróðir hennar Sylvíu og svo kannski kíkji ég í eina einnig sem mér er boðið í jibbý ....

Páskar í NÆSTU viku vúhú!! Smá frí!!


See ya elskurnar mínar og góða helgi!

Roadtrip eða konutrip??

27. mars 2007 klukkan 15:42

Jæja þá er ég komin með nýtt look á síðuna mína , svaka flott, finnst ykkur ekki??

En annars var helgin mjög skemmtileg tók smá djamm á laug og var það mjög gaman vegna þess að það voru ekkert svo margir að djamma! Já, það hljómar asnalega en já !! Ég kíkti á djammið með Sylvíu gellu og hún átti einmitt afmæli á Sunnudeginum! Svo við tvær og allir hinir sem voru að djamma héldum uppá það og var mjög gaman!
<<Búin að setja inn myndir!!>>

Afmælisbarnið ;* ;*

Hey þær sem eru í stuði fyrir smá konukvöld! Endilega komiði þá á konukvöld í Firðinum í Hafnafirði annað kvöld! Ég er í tískusýningu þar og verður örugglega svaka stuð!! Eða vonandi híhí.. Ég er að sýna föt fyrir Mambó í Firðinum.. En hún Sigga mín gellan á barnum á Trix, bað mig um að koma! Og mér finnst þetta svo gaman að ég ákvað að skella mér! Svo verða bara konur þarna svo þetta verður gaman!!
Endilega ef þið viljið koma með , látið mig þá vita Glottandi

Vúhú ég er svo að fara að verða ljóshærð aftur , það er miklu skemmtilegra hehe! Fer núna á Föstudaginn! hehe!


Hey hver vill koma í smá road trip með mér á Laug?? Let me know hehe Glottandi


Nenni ekki að skrifa meir!
Vala kíktu á mig í kvöld! híhí....

<<17-dagar í sumarbústaðaferðina!! jibbý!!>>
<<9-dagar í páskafrí>>


Love kiss kiss
Ásdís!!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Bústaðaferð Dynamite

Sálarball ;)

Myspaceið mitt ;*

www.myspace.com/asdis85

Innskráningar kubbur

Klukkan

Könnun

How old are you?